Ota Pavel. Překlad do islandštiny (z anglického překladu Jindřišky Badal a Roberta McDowella) Gyrðir Elíasson. Produkce (?) Gyrðir Elíasson.
Účinkuje Hjalti Rögnvaldsson.
Natočeno 2011. Vydal Hljóðbók, Reykjavík 2011 (cca 300 min).
Lit.: anonym: Hvernig ég kynntist fiskunum – Hjalti Rögnvaldsson leikari les. In web Hljóðbók, b. d. (článek + ukázka k poslechu). – Cit.: Hvernig ég kynntist fiskunum eftir tékkneska rithöfundinn Ota Pavel (1930-1973) er rómað safn samtengdra frásagna sem byggja á bernskuminningum höfundar. Verkið leikur á mörkum skáldsagna- og smásagnagerðar og lýsir með ljúfsárum hætti veröld sem var í sveitahéruðum Tékkóslóvakíu, áður en síðari heimsstyrjöldin skall á og landið var hernumið af Þjóðverjum.
Hér segir af ævintýralegum veiðiferðum Poppers sölufulltrúa og Proseks ferjumanns, af vatnakörfum sem fóðraðir eru á maltkorni og dádýrshjörtum sem ruggað er í barnavögnum, en þegar stríðið brýst út, eru faðir og bræÃ°ur hins unga sögumanns sendir í fangabúðir Þjóðverja. Og þá stendur upp á hann einan að færa björg í bú.
Ég klifraði upp í pílviðartréð og tók fram stöngina. Ég mótaði brauðdeig utan um öngulinn og bjó til freistandi bollu. Það var hljótt við tjörnina og ekki auðvelt að koma auga á mig. Strompar bruggverksmiðjunnar spúðu reyk meðan bjórinn freyddi í kerrunum. Lækurinn ilmaði dásamlega og pílviðurinn hvískraði í andvaranum. Þjóðverjarnir höfðu lokað kastalagluggunum af því tekið var að kólna. Uppljóstrararnir skreiddust heim til sín undir kvöldið.
Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana voru tilkynnt á dögunum.
Þar hlaut bókin Hvernig ég kynntist fiskunum eftir Ota Pavel í þýðingu Gyrðis Elíassonar önnur verðlaun í flokki þýddra skáldverka.
Af þessu tilefni er ekki úr vegi að rifja upp ummæli um þessa bók sem féllu í Kiljunni í haust:
„Ótrúlega falleg bók.“
Kolbrún Bergþórsdóttir
„Þýðingarnar eru náttúrulega ótrúlegar … gríðarlega auðugur og fallegur skáldskapur.“
Páll Baldvin Baldvinsson
Það er langt síðan ég hef lesið bók sem hefur hreyft jafn mikið við mér.“
Egill Helgason